Velkomin á heimasíðu VocMat
Starfsnám fyrir stjórnendur í evrópskum ferðaþjónustufyrirtækjum

Ert þú:
  • Millistjórnandi eða yfirstjórnandi?
  • Working in the public sector or in a small or medium sized tourism enterprise?
Ertu að leita að:
  • Framúrskarandi menntun fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu?
  • Tækifærum til framþróunar í starfi?
  • Nýrri tegund evrópskra starfsréttinda?
Þá er VocMat rétta svarið.

VocMat verkefnið hefur það markmið að þróa nýtt og sveigjanlegt starfsnám fyrir millistjórnendur og yfirstjórnendur í evrópskum ferðaþjónustufyrirtækjum.

Að verkefninu standa þátttakendur frá háskólum og ferðamálasamtökum sem annast starfsmenntun í Skotlandi, Englandi, Eistlandi og á Íslandi.

Menntunin nýtist jafnt í opinbera geiranum sem og í öllum stærðum einkarekinna fyrirtækja.

Rannsóknir í tengslum við VocMat verkefnið hafa náð til allra stærða og tegunda einkarekinna ferðaþjónustufyrirtækja og opinberra stofnana í ferðaþjónustu. Þær hafa í leitt í ljós margvíslega menntunarþörf og fjölda hindrana sem eru sameiginlegar stjórnendum í báðum þessum geirum atvinnulífsins.

VocMat mun henta þeim sem reka gistiþjónustu, afþreyingarþjónustu og ýmsa aðra einkarekna starfsemi og einnig aðilum sem fást við skipulagningu og markaðssetningu og starfsmönnum svæðisskrifstofa eða upplýsingamiðstöðva um ferðamál. Námið getur einnig nýst stjórnendum í fyrirtækjum sem standa frammi fyrir svipuðum vanda og ferðaþjónustan.

Síðast uppfært 31 December, 2008